Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Bætt aðkoma við Keflavíkurflugvöll

Ný og bætt aðkoma að komusvæðinu við KEF hefur verið tekin í notkun. Með nýrri innkeyrslu, yfirbyggðum gönguleiðum og aukinni þjónustu hefur aðstaða fyrir farþega og þá sem sækja þá verið stórbætt.

Ný og bætt að­koma að komu­bíla­stæð­um við Kefla­vík­ur­flug­völl

Búið er að opna nýja og bætta innkeyrslu inn á komusvæðið við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þar sem meðal annars má finna komubílastæðin eða sótt úr flugi (P2). Nýju aðkomuna inn á svæðið má sjá á meðfylgjandi mynd.

Síðustu mánuði hafa miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á bílastæðunum þeim megin þar sem komufarþegar koma út úr flugstöðinni. Því verkefni mun senn ljúka og öll aðstaðan þar mikið bætt fyrir farþega og allt fólk sem sækir þjónustu eða veitir hana við flugstöðina. 

Búið er að byggja yfir helstu gönguleiðir á svæðinu (grænmerktar gönguleiðir á meðfylgjandi mynd). Farþegar eru þannig varðir fyrir veðri og vindum á leið sinni að eða frá þeim samgönguleiðum sem þeir hafa valið. 


Þá hefur rennu verið komið fyrir vestast á P2 þar sem hægt er að sækja farþega með sama hætti og þeim er skutlað í flug um rennuna hinum megin. Sömu reglur gilda í þessari rennu upp við flugstöðvarbygginguna og brottfararmegin, þ.e. fimm mínútur gjaldfrjálsar, til að tryggja óhindrað flæði. Þurfi farþegar lengri tíma til að sækja farþega er gjaldfrjálst í hálfa klukkustund innan hvers sólahrings á komubílastæðunum þannig að ekki þurfi að hafa sérstakar áhyggjur af því hvað tímanum líður.
Á næstu vikum verður framkvæmdum á komubílastæðunum að mestu lokið og nýjar og skýrar merkingar komnar upp.  
Þessu til viðbótar er áformað að koma upp sérstakri hjólaaðstöðu á komusvæðinu eins og sjá má á skýringarmynd. Það svæði er hugsað fyrir starfsfólk til að geyma reiðhjól sem það notar til að komast til vinnu, meira um það hér. Fyrir farþega verða geymsluskápar fyrir hjólatöskur og aðstaða til samsetningar og undirbúnings reiðhjóla. Verðfyrirspurn vegna uppbyggingar nýju hjólaaðstöðunnar er í fullum gangi.

Fjölmörg framkvæmdaverkefni eru í vinnslu á flugstöðvarsvæðinu, nánari upplýsingar um framkvæmdir á KEF má finna hér