Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli í sumar

Fjölbreyttar samgönguleiðir standa ferðalöngum til boða sem ferðast til og frá Keflavíkurflugvelli. Hvort sem ferðast er með einkabíl, leigubíl, bílaleigubíl, rútum eða með almenningssamgöngum, þá eru margar leiðir í boði.

Fjölbreyttar samgönguleiðir standa ferðalöngum til boða sem ferðast til og frá Keflavíkurflugvelli. Hvort sem ferðast er með einkabíl, leigubíl, bílaleigubíl, rútum eða með almenningssamgöngum, þá eru margar leiðir í boði.

Hvað er þægilegast, fljótlegast eða ódýrast? Hér verður farið yfir helstu samgöngumáta til og frá flugvellinum og á höfuðborgarsvæðið. Þannig ættu allir ferðalangar að geta fundið þann ferðamáta sem hentar þeim best, allt eftir þörfum, tíma og fjárhag.

Með rútu

Flugrútan / Flybus sinnir skipulögðum ferðum milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Rúturnar ganga með reglulegu millibili í tengslum við flugáætlanir, allan sólarhringinn, milli flugvallar og höfuðborgarsvæðis. Mælt er með því að bóka flugmiða í rúturnar fyrir fram.

Flugrútan keyrir með farþega frá BSÍ til KEF samkvæmt tímatöflu Keflavíkurflugvallar en hana er hægt að skoða á flybus.is. Komufarþegar eru síðan keyrðir til höfuðborgarsvæðis 40 mínútum eftir lendingu hvers flugs og mun örar á álagstímum. Farþegar rútunnar geta stigið úr rútunni við Aktu Taktu í Garðarbæ og Fjörukrána í Hafnarfirði, auk þess sem rútan sækir og skutlar á fjölda gististaða og biðstöðvar innan Reykjavík. Farþegar sem leita upplýsinga geta fundið þær á upplýsingaborði Flugrútunnar sem er staðsett í komusal KEF eða á flybus.is. Miðakaupin fara fram á vefnum, upplýsingaborði eða í sjálfsölum á Keflavíkurflugvelli. Sjálfsalarnir eru staðsettir í komusal, eftir að komið er út um tollahliðið.

Á einka­bíl

Gestum flugvallarins, sem kjósa að keyra sjálfir á flugvöllinn, bjóðast nokkrar tegundir bílastæða sem henta ólíkum hópum flugfarþega. Bílastæðin geta þó fyllst á álagstímum og er því gestum bent á að bóka stæðin tímanlega.

P1 - Skammtímastæði

Skammtímastæðin merkt P1  eru staðsett beint fyrir framan brottfararsalinn. Þessi stæði henta vel þeim sem vilja gera betur við sig og labba styttra í flugstöðina. Hentar einnig þeim sem eru að dvelja í skamman tíma á flugvellinum.

P3 – Almenn stæði

Almenn stæði eru merkt P3 og eru langtímastæði. Þessi stæði eru á hagstæðasta verðinu og eru ætluð þeim sem vilja skilja bílinn eftir til lengri tíma.

Úrvalsstæði

Úrvalsstæði eru stæðin sem bjóða uppá hvað mestu þægindin. Bílnum er lagt í sérmerkt stæði við brottfararhlið og lyklum skilað í lyklabox í brottfararsal. Því næst leggur starfsfólk flugvallarins bílnum í öruggt stæði. Við heimkomu er honum skilað aftur upp við flugvöllinn.

Með leigu­bíl

Á Keflavíkurflugvelli eru leigubílar til taks allan sólarhringinn og standa að jafnaði fyrir framan flugvöllinn í röðum. Ferðalangar geta því komist  á áfangastað sinn áreynslulaust. Farþegar sem vilja bóka leigubíl á Keflavíkurflugvelli geta gert það á vefsíðum leigubílafyrirtækja, símleiðis eða með því að hafa samband við leigubílstjóra. Mælt er með því að spyrja um verð áður en haldið er af stað.

Skutlað á flug­völl­inn

Fyrir þá sem fá far upp á flugvöll er hægt að stöðva bílinn í svokallaðri “rennu” við brottfararinngang flugstöðvarinnar á meðan farþegum er hleypt út, farangur er losaður og kveðjustund á sér stað. Fyrstu 5 mínúturnar í rennunni gjaldfrjálsar en eftir þær er gjald tekið. Á P2-bílastæðunum við flugstöðina er svo hægt að leggja bílnum til lengri tíma. Nýlega var gjaldfrjáls tími á P2-bílastæðunum lengdur úr 15 mínútum í 30 mínútur.

Með Strætó

Ef valið er að fara með Strætó til Keflavíkurflugvallar er farið með leið 55, en vagninum er ekið daglega á milli höfuðborgarsvæðisins og KEF. Strætómiða er ekki hægt að bóka fyrir fram, heldur mæta viðskiptavinir á biðstöðina á þeim tíma sem vagninn á að koma og greiða með greiðslukorti um borð í vagninum. Strætó keyrir ekki í samræmi við flugáætlun heldur byrjar að keyra klukkan hálf sjö á morgnana og gengur með reglulegu millibili þar til um klukkan 11 á kvöldin. Þessi lausn hentar því betur farþegum sem eiga flug yfir daginn.

Farþegum sem taka Strætó frá höfuðborgarsvæðinu á Keflavíkurflugvöll er hleypt út beint fyrir framan inngang flugstöðvarinnar. Komufarþegar sem ætla sér að fara frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgarsvæðisins nota biðstöð Strætó við Kjóavelli, sem er staðsett brottfararmegin, um 150 metra frá flugstöðinni.

  • Verð: Frá 2.280 kr.
  • Tímalengd: 1 klst og 20 mín frá KEF að BSÍ
  • Frekari upplýsingar: Vefsíða Strætó.

Bíla­leig­ur

Fyrir gesti flugvallarins sem óska eftir að leigja bíl við komu sína til landsins, býður KEF upp á beinan aðgang að þjónustu fjögurra mismunandi bílaleiga. Bílaleigurnar Avis, Bílaleiga Akureyrar, Budget og Hertz, eru allar með aðstöðu innan flugstöðvarinnar, nánar tiltekið í komusal. Viðskiptavinum er ráðlagt að bóka bílaleigubílinn fyrir fram til þess að auðvelda ferðaáætlun og tryggja að ökutæki sé tiltækt við komu. Með því að nýta sér þessa þjónustu geta ferðamenn  tekið við lyklum og hafið ferðalag sitt um Ísland strax við komu. Bílaleigubílar eru sóttir við Kjóavelli, sem eru um 5 mínútna spöl frá komusalnum. Nánari upplýsingar um staðsetningu og aðgengi má finna á vefsíðum hvers bílaleigufyrirtækis.

  • Verð: Breytilegt og fer eftir tegund bíla og lengd leigu
  • Ferðatími: Breytilegur og háð umferð. Áætlaður u.þ.b. 30-90 mínúturFrekari upplýsingar: Vefsíða KEF