Almenn stæði (P3)
Stæði fjær flugvelli og lægsta verðið. Henta vel fyrir lengri ferðalög þar sem þú leggur bílnum fjær og labbar aðeins lengri leið að flugvellinum.
Lægsta verðið og aðeins lengra labb
Ef þú vilt fá hagstæð kjör og ert á leið í langt ferðalag þá eru Almennu stæðin okkar einmitt það sem þú leitar að. Þau eru merkt P3 og staðsett aðeins fjær flugvellinum, í innan við 5 mínútna göngufjarlægð.
Þú keyrir inn á stæðið og leggur bílnum á góðum stað. Þar stendur hann síðan á meðan þú ferðast og bíður eftir þér á sama stað við heimkomu.

