Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Bóka þarf bílstæði um páskana

Búist er við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll um komandi páska og fyrirsjáanlegt er að bílastæði flugvallarins verði fullnýtt fyrir og yfir hátíðarnar. Gestir Keflavíkurflugvallar eru hvattir til þess að mæta snemma í flug og þau sem koma á bíl að bóka stæði fyrir fram.

Bóka þarf al­menn stæði

Frá og með föstudeginum 27. mars næstkomandi og fram yfir páska verður aðeins hægt að leggja bílum með bókuð stæði á almennum stæðum, P3. Ekki verður því hægt að aka inn á bílastæðið nema bókun sé til staðar. 

Til að tryggja sér bílastæði við Keflavíkurflugvöll um páskana þarf að bóka stæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar

Aðr­ir sam­göngu­mátar

Einnig er vakin athygli á öðrum samgöngumátum til og frá flugvellinum. Þar má nefna flugrútunastrætisvagna og leigubíla. Hér má finna kort af bílstæðum við KEF og upplýsingar um staðsetningu á samgönguþjónustu við flugstöðina

Skutla eða sækja?

Gestum sem er skutlað í flug er bent á svokallaða rennu við brottfararinngang. Þar er hægt að stöðva bíla í stutta stund til að hleypa út farþegum, losa farangur og ganga beint inn. Til þess að tryggja gott flæði og aðgengi allra að rennunni hvetjum við fólk til að stoppa ekki lengur en þörf er á. Gjaldfrjálst er að stoppa í rennunni í 5 mínútur. Fyrir lengri tíma er bent á að hægt er að leggja á P1 bílastæðum brottfarar megin gjaldfrjálst í 15 mínútur og á P2 bílastæðunum komu megin í 30 mínútur.