Með bíl
Ertu að skutla eða sækja?
Við bjóðum nokkra valkosti þegar kemur að því að skutla eða sækja á völlinn. Betri stæðin okkar, P1 & P2 henta vel til að sækja og skutla farþegum. Fyrstu 15 mínúturnar eru fríar en eftir það gildir verðskráin okkar.
Bílastæðin okkar
Við erum með þrjár gerðir af bílastæðum:
- P1 – betri stæði Betri stæðin eru staðsett við innritunarsalinn. Þessi stæði henta vel fyrir þau sem vilja leggja nálægt flugstöðinni bæði fyrir styttri eða lengri ferðir. Þessi stæði eru sömuleiðis með snjóbræðslu.
- P3 – almenn stæði Þetta er hagkvæmasta svæðið okkar og hentar vel fyrir þá sem eru að fara í lengri ferðir.
- Úrvalsstæði
Úrvalsstæðin okkar er sú þjónusta sem býður upp á mestu þægindin. Þú leggur bílnum í sérmerkt stæði alveg upp við innritunarsal flugstöðvarinnar. Lyklunum er skilað í lyklabox við brottfararsal og starfsfólk okkar leggur bílnum þínum í öruggt stæði. Við heimkomu mun síðan bíllinn þinn bíða við sama stæði og hann var lagður í upphaflega.